Tóta, Erna Rún, Rannveig, Gígja, Jovana, Ólöf Helga

12.09.2007 16:16:34 / tergjo

Það er víst komin ný síða hjá okkur

Sælar stúlkur

Rannveig tók sig til og útbjó nýja síðu handa okkur..

Þetta er slóðin:

www.skvissurnar.bloggar.is

Ég man ekki lykilorðið né notendanafnið en ég veit að þessi síða er í 2.739 sæti yfir mestu skoðuðu síðurnar á bloggar.is, geri aðrir betur...

Sjáumst...

ErnaRún


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 10:12:02 / tergjo

Afmælisbarn dagsin er...

Hún á afmæl í dag, hún á afmælí dag hún á afmælí dag.....

Einn meðlimur saumaklúbbins er árinu eldri í dag. Vonandi hefur hún fengið að sofa út í morgun og Gummi sé tilbúinn með morgunmatinn og rósina í rúmið! Hún tekur á móti gestum og gangandi að heimili sínu í dag á milli klukkan 14 og 16. Hún lofaði að hafa heitt á könnunni og pönnukökur með ;)

Þetta er ofurbeibið og súpermamman hún Rannveig!!!

Elsku Rannveig innilega til hamingju með daginn... 

Bestu afmæliskveðjur Saumaklúbburinn! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 21:42:19 / tergjo

Næsti hittingur

 

 Jæja stúlkur mínar.....

 

Mér skilst að sumar eru orðnar frekar óþolinmóðar að bíða eftir næsta hittingi......en hér kemur hann jjiiibbbbbíííííí;)

 

Laugardaginn 25 ágúst kl 18:30 að Staðarhrauni 52

 

Hlakka til að sjá ykkur

 

busy women:) 


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 20:42:34 / tergjo

Ammili:)

Jæja þá var hún Jovana aka Joey 22 ára snót þann 4 ágúst og óskum við henni innilega til hamingju með daginn, undirritaður á síðan ammili seinna í mánuðinum en læt aðra um að blogga um það:) En við þurfum að fara að hittast helst áður en að mánuðurinn er liðinn alltof langt síðan síðast, bið að heilsa ykkur kveðja Rannveig


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 19:01:52 / tergjo

Jæja stúlkur........

 

 Blessaðar og sælar...

Ég held að það sé löngu komin tími a hitting:) Ég var að spá að koma með nokkrar dagsettningar og síðan mynduð þið bara segja hvaða dagsettning hentar ykkur best:) Þar sem það eru að byrja æfingar á fullu í næstu viku og það er skildumæting þá þannig að ég ætla að koma með dagsettnignarnar í byrjun næstu viku:) (þegar Sandra er búin að láta okkur fá planið)

Verð í bandi strax i næstu viku...fariði ekki langt;)

Ps bloggheimurinn er sko alls ekki fyrir mig, mér liður hálf kjánalega hérna hehehehe

Jovana


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 20:50:27 / tergjo

Næsti hittingur?????

 

Jæja dömur er ekki kominn tími á næsta klúbb Ernan er búin að eiga og allir á klakanum og endilega kominn tími á hitting hjá okkur orðið alltof langt síðan við hittumst síðast en við erum jú 6 og ekki geta allar verið á landinu eða annað í einu, en reynum samt að finna tíma þar sem að við getum allar verið saman og notið kvöldsins, Joey ætlaðir þú að vera með næsta klúbb?? Sú sem ætlar að halda næsta klúbb bara endilega að tjá sig hér á síðunni okkar og finnum tíma sem að við komumst allar.

Kveðja Rannveig:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 17:50:49 / tergjo

Lítil dama!

Jæja dömur mínar þá er hún Erna okkar búin að eiga frumburðin og erum við þá orðnar tvær mömmur í hópnum:) Allt gekk rosalega vel hjá henni og ég held nú bara að hún sé fædd í það að eignast börn, litla daman var 50 og 1/2 cm og 14 merkur, sem sagt algjör dúlla! Þá er bara að drífa sig á morgun og kaupa einhver gelluföt á dömuna á morgun og ætlum við(ég Rannveig) og Gígja að kíkja á þau til keflavíkur á sunnudaginn en hún átti þar.

Elsku Erna og Óðinn innilega til hamingju með litlu prinsessuna!

kveðja saumaklúbburinn.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 15:12:41 / tergjo

Skvísulísur!

Jæja stúlkur ætlaði bara að þakka fyrir síðast, alltaf gott að hittast svona og komast út úr húsi, það er alveg bráðnauðsynlegt að gera þetta , síðan verðum við að hittast eftir að Erna verður búin að eiga í sumar og gera okkur glaðan dag:), bið að heilsa Rannslan.

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 23:51:09 / tergjo

Hittingur á morgun..........

Vill staðfesta að það er hittingur á morgun þar sem Erna Rún var eitthvað að efast,..... hehehehehe.

Mæting um 8 leytið........

Heimilisfangið er Eggertsgata 28 íbúð 302! 

(Hringið ef þið eruð í vandræðum.)

            Lofa þvílíkum veitingum Gígja Fel matar eitthvað gott ofan í ykkur ... hahahaha

 kveðja Gígja!

 

Gott að hafa hlutina á hreinu varðandi matarboð..............

Family Place Setting Guide


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 14:42:47 / tergjo

Næsti saumaklúbbur.......

Jæja skvísur....

 Þá er komið að næsta klúbb.

Hvernig hljómar n.k miðvikudagur 6.júní svona um 8 eða mili 7 og 8????

Endilega látið heyra í ykkur...

kv. Gígja


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 10:00:01 / tergjo

Afmælisbarn mánaðarins!

Þá á hún Ólöf Helga Pálsdóttir stórskytta og partýljón afmæli í dag og er skvissan 22 ára í dag og óskum við henni innilega til hamingju með daginn, og þess má einnig geta að hann Eric Cantona uppáhaldsknattspyrnumaðurinn hennar á einnig afmæli í dag;)

Til hamingju með daginn snúlla dúlla kveðja frá dömunum í klúbbnum!


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 23:21:52 / tergjo

Yo Djamm............eða eitthvað?

Hey hvað segiði eru gellurnar ekki til í djamm eða eitthvað sniðugt? dekurdag, keilu bara eitthvað skemmtilegt, sumarið að byrja, prófin búin, bara að tékka hvernig liggur á ykkur, endilega kommenntið og látið vita.

Out rannslan!


» 16 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 09:34:14 / tergjo

Nokkur orð um vináttu!

Friends are always there with a helping hand to lift you up when you are sad, they encourage you when you're in a doubt laughing at your jokes, even when they´re bad, they lend a smile that brightens your day, a true friend is here to stay.

 

Kveðja Rannslan.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 14:15:57 / tergjo

Híhíhí ég er svo mikil brandarakona.....

65 ára gömul kona eignaðist dreng á fæðingadeildinni. Hún fékk að fara heim fljótlega og þegar ættingjarnir komu í heimsókn vildu þeir náttúrulega sjá barnið.

"Getum við séð barnið?" spurði systur konunnar.
"Ekki strax" sagði móðirinn. "Ég skal laga kaffi og með því fyrst".
Hálftíma seinna spurði annar ættingi - "Getum við fengið að sjá barnið
núna?"
"Ekki strax" sagði móðirinn.

Eftir nokkrar mínútur spurðu ættingjarnir aftur, "Getum við séð barnið
núna?"
"Nei, nei - ekki strax" svaraði móðirinn.
Ættingjarnir voru orðnir verulega óþolinmóðir og spurðu aftur - "Jæja,
hvenær fáum við að sjá barnið?"
"ÞEGAR HANN GRÆTUR" hastaði hún pirruð
"ÞEGAR HANN GRÆTUR?" þau vildu vita af hverju.
"Af hverju þurfum við að bíða þangað til hann grætur????.
"ÚT AF ÞVÍ, ég gleymdi hvar ég setti hann!!

Betra að klára barneignirnar fyrr en seinna hehehe

Kveðja Erna Rún sem á að vera að læra en nennir því ekki og vill heldur vera bara að éta.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 22:23:51 / tergjo

Ammili!

Já stelpur það eru hvorki meira né minn tvær sem að eiga afmæli í þessum mánuði í klúbbnum og  allt að ske og það gleymdist að blogga um það hún Gígja okkar átti afmæli þann 18 apríl og var hún 21 árs gömul og hún Tóta okkar er 26 ára í dag þann 29 apríl!                                   Vildi bara koma þessu á framfæri þar sem að ég er alltaf að blogga blogga blogga er orðinn hiper að blogga eftir að ég fékk netið! Bið að heilsa ofurbloggandi húsmóðirin!

Já og til hamingju stelpur8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill